Jafnlaunastefna Dropp

Jafnlaunastefna Dropp ehf. er órjúfanlegur hluti af launastefnu og gildir fyrir alla starfsmenn félagsins. Jafnlaunastefnan skal uppfylla viðeigandi viðmið um jafnlaunastefnur í samræmi við ÍST 85. Dropp ehf. fylgir ákvæðum laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja starfsfólki Dropp ehf. þau réttindi sem koma fram í 6. gr. laganna.

Dropp ehf. greiðir laun sem taka mið af þeim kröfum sem starfið gerir um menntun/þekkingu, hæfni og ábyrgð. Það er stefna Dropp ehf. að allir starfsmenn njóti jafnra launa og sömu kjara og réttinda fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn kynbundinn launamunur sé til staðar hjá félaginu. Um skilgreiningu á launum og kjörum vísast til 9. og 10. mgr. 2. gr. og 19. gr. fyrrnefndra laga. Dropp ehf. fylgir öllum viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma. Launaákvarðanir skulu vera gegnsæjar, málefnalegar og vel rökstuddar.

Til að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Dropp ehf. sig

  • Að skjalfesta, innleiða, viðhalda og bæta stöðugt stjórnun jafnlaunakerfisins í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og ákvarða hvernig kröfur hans verða uppfylltar.
  • Dropp ehf. hefur innleitt verklag og skilgreint viðmið við ákvörðun launa þar sem hver og einn fær greitt fyrir starf sitt út frá verðmæti þess óháð kyni, kynvitund eða öðrum ómálefnalegum ástæðum.

Umsjónarmaður jafnlaunakerfisins ber ábyrgð á jafnlaunakerfi Dropp ehf. og sér til þess að kerfið sé skjalfest, innleitt og stöðugt uppfært. Allir stjórnendur eru skuldbundnir til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frábrigðum sem koma fram við rýni á jafnlaunakerfinu. Stefnan skal birt á ytri vef Dropp ehf. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á því að stefnunni sé framfylgt.

Samþykkt af framkvæmdastjóra þann 09.10.2025